Skoða efni

Tenerife

Ódýrt flug til Tenerife

Fullkomin paradísareyja

Má bjóða þér frí í sólinni á eyju rétt utan við strendur Afríku þar sem sólin skín nánast alla daga á strendur og sumardvalarstaði með fallegum klettum og fjalllendi í bakgrunni? Ekkert mál. Við reddum því.

Ef draumurinn er að komast í sólarfrí er erfitt að toppa Tenerife. Kanaríeyjar eru vinsæll ferðamannastaður sóldýrkandi Evrópubúa og Tenerife er stærsta eyjan í þessum spænska eyjaklasa.

Þótt hún sé ekki mjög stór má finna ótrúlega fjölbreytt landslag á eyjunni. Óvirka eldfjallið Teide ræður hér ríkjum á miðri eyju en allt í kring má finna gular og svartar strendur, græn útivistarsvæði og fallega almenningsgarða. Hér er líka fullt af frábærri afþreyingu eins og Siam-vatnagarðurinn, Loro-dýragarðurinn og mörg áhugaverð söfn. Göngur og hjólaferðir eru svo æðisleg skemmtun á þessum slóðum í fullkomnu hitastigi og skemmtilegu umhverfi.

Sólrík strönd, heitur sandur og hlýtt haf

Þá er ótalið allt sem hafið hefur upp á bjóða. Hvort sem hugmyndin er að fara í útsýnisferð, hvalaskoðun, að synda með höfrungum, komast í köfun, lóna á vindsæng eða að ná adrenalíninu upp á sjóskíðum og sæköttum ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi í sjónum við Tenerife.

Eftir gefandi dag í sjónum er svo dásamlegt að finna sér stað á sólríkri ströndinni til að fylla á D-vítamínbirgðirnar.

Þeir sem hafa klárað uppsafnaða slökunarþörf á ströndinni geta skellt sér í einn golfhring á einhverjum þeirra mörgu úrvalsgolfvalla sem Tenerife hefur upp á að bjóða, náð upp skrefafjöldanum og bætt forgjöfina.

Ef hugmyndin um draumafríið er grár suddi og rigning í stressi og kvíða, skaltu fara eitthvað annað. Tenerife er áfangastaður til að slaka á, skemmta sér konunglega og njóta lífsins í hlýrri sólinni.

Vinsæl afþreying í Tenerife

Uppgötvaðu litríkt lífríkið í sjónum fyrir utan Tenerife. Fáðu að sjá og upplifa sædýr og sjávarfang Tenerife með eigin augum í þrjá og hálfan tíma.

Sjóbretti er blanda af hjólabretti, sjóskíðum og snjóbretti en hér er brettið dregið af hraðbát í sjónum. Þetta er frábær afþreying fyrir adrenalínfíkla sem vilja prófa eitthvað öðruvísi á Tenerife!

Í þessari siglingu tekur vinalegt starfsfólk á móti litlum hópum og siglt er frá Puerto Colon í leit að hvölum og höfrungum sem synda frjálsir í sjónum undan ströndum Tenerife.