Skoða efni

Af hverju ætti ég að kaupa forfallavernd?

Þegar þú kaupir forfallavernd er miðinn þinn verndaður fyrir ófyrirséðum aðstæðum eins og skyndilegum veikindum eða andláti ástvinar.

Þú getur keypt forfallavernd þegar þú bókar flugið þitt. Hana er einungis hægt að kaupa fram og til baka.

Ef þú eða ástvinur veikist eða lendir í slysi sem kemur í veg fyrir flug, verður miðinn endurgreiddur að fullu að því tilskildu að nauðsynleg gögn séu lögð fram.

Gögnin þurfa að tilgreina ástæður fyrir því að farþegi sé ófær um að ferðast þær dagsetningar sem fyrirhugaðar voru og geta verið meðal annars læknisvottorð/vottorð frá ljósmóður, dánarvottorð náins fjölskylduaðila/vinar, vottorð um sóttkví vegna COVID-19 eða vottorð um staðfest smit af COVID-19.

Ef flugið er ekki nýtt af ástæðum sem falla undir ofangreind atriði munum við biðja þig um að hafa samband við þjónustuteymi okkar með viðeigandi gögn eigi síðar en sjö dögum eftir áætlað flug.

Vinsamlegast athugið að:

  • Forfallavernd er aðeins hægt að kaupa við bókun
  • Forfallavernd er keypt á hvern farþega fyrir sig
  • Allt er endurgreitt nema forfallaverndin sjálf
  • Röskun á ferðalagi vegna skorts á gildum skilríkjum, vegabréfsáritun eða öðrum ferðaheimildum fellur ekki undir forfallaverndina.

Vinsamlegast hafið í huga að leggja þarf fram öll viðeigandi gögn til að fá miðann endurgreiddan.

Athugið að breytingagjald vegna breytinga á flugmiða fellur ekki undir forfallavernd.

Forfallavernd er aldrei endurgreidd, henni er ekki hægt að breyta og hana er ekki hægt að framselja.