Skoða efni

Krónurnar koma þér út

Nú er hægt að nota Aukakrónur til að greiða fyrir flug með PLAY. Viðskiptavinir Landsbankans safna Aukakrónum þegar þeir nota kreditkortið sitt eða fyrirframgreitt kort og bæta enn meira við söfnunina þegar verslað er við samstarfsaðila. PLAY er stoltur samstarfsaðili Landsbankans og þú getur bæði grætt Aukakrónur og greitt með þeim þegar þú bókar flugið.

Hafðu Aukakrónukortið við höndina, kíktu á ódýrt flug með PLAY í dag og komdu þér út fyrir krónurnar!

Hvernig virkar þetta?

Aukakrónukort virkar eins og önnur greiðslukort þegar gengið er frá greiðslu fyrir flug en aðeins er hægt að nota eitt greiðslukort í hverri bókun.

Ef þú átt Aukakrónur fyrir öllu fluginu notar þú einfaldlega Aukakrónukortið eins og hvert annað greiðslukort en kortaupplýsingarnar er að finna í Landsbankaappinu.

Ef þú vilt nota Aukakrónur upp í hluta ferðar er auðvelt að kaupa gjafabréf PLAY fyrir Aukakrónurnar sem þú vilt nota upp í flugið og greiða svo mismuninn með greiðslukorti. Athugið að það getur tekið allt að 48 tíma fyrir gjafabréf að virkjast. Allar nánari upplýsingar um Aukakrónur má finna á www.aukakronur.isHlekkur opnast í nýjum flipa.