- Fréttir
Play flýgur til Antalya í Tyrklandi
Play flýgur til Antalya í Tyrklandi
Flugfélagið Play hefur hafið sölu á áætlunarflugi til Antalya í Tyrklandi. Fyrsta flugið verður farið 15. apríl á næsta ári og verður flogið einu sinni í viku fram til byrjun júnímánaðar áður en áætlunin verður tekin upp að nýju í september og fram yfir miðjan nóvember.
Antalya býður upp á heillandi blöndu af sögu, menningu og náttúru, sem gerir borgina að einum af aðaláfangastöðunum við Miðjarðahafið. Þar er hægt að ganga um götur Kaleici-hverfisins og virða fyrir sér byggingarstíl frá tímum Ottómana á sama tíma og hægt er að skoða spennandi verslanir og bregða sér á sjarmerandi kaffihús. Þeir sem sækja í afslöppun munu eiga góðar stundir á Konyaalti og Lara-ströndunum. Náttúruunnendur geta einnig virt fyrir sér Düden-fossana og hina fornu borg Termessos sem veitir mikilvæga innsýn í sögu Tyrklands.
Antalya er einnig frábær áfangastaður fyrir kylfinga en í hálftíma fjarlægð frá borginni er bærinn Belek sem er frægur fyrir golfvelli sína sem eru á heimsmælikvarða.
Í Antalya má einnig finna skemmtigarðinn The Land of Legends sem er einn af þeim stærstu og glæsilegustu í Tyrklandi. Þar má finna vatnsrennibrautir, rússíbana, sýningar, verslanir og veitingastaði.
„Antalya er einstaklega áhugaverður áfangastaður sem mun vafalaust laða að marga Íslendinga á næsta ári. Borgin mun heilla jafnt þá sem hafa áhuga á sögu og menningu Tyrklands sem og þá sem vilja magnaða sólarlandaupplifun. Við höfum það að markmiði að bjóða eina flottustu sólarlandaáætlun sem völ er á og styrkjum hana enn frekar með þessum frábæra áfangastað.” segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play.