- Fréttir
PLAY slær eigið met fyrir sætanýtingu í nóvember
PLAY slær eigið met fyrir sætanýtingu í nóvember
Flugfélagið PLAY flutti 99.393 farþega í nóvember 2024, samanborið við 107.236 farþega í nóvember 2023. Þetta endurspeglar 17% mun á framboði á milli ára sem er bein afleiðing af þeirri ákvörðun PLAY að leigja eina af farþegaþotum sínum til GlobalX í Miami og að aðlaga framboðið eftir árstíðarbundnum sveiflum. Á móti kemur var sætanýting PLAY með besta móti í liðnum nóvember, 82,4%, samanborið við sætanýtingu upp á 74,5% í nóvember í fyrra. Sætanýtingin í liðnum nóvember var sú hæsta sem PLAY hefur náð í nóvembermánuði frá því félagið hóf sig til flugs fyrir rúmum þremur árum.
Af þeim farþegum sem flugu með PLAY í nóvember voru 29,6% að ferðast frá Íslandi, 38,9% á leið til Íslands og 31,5% voru tengifarþegar (VIA).
Þó að dregið hafi verið úr framboði í nóvember þá jókst fjöldi íslenskra farþega á milli ára. 29.400 Íslendingar flugu með PLAY í liðnum nóvember, samanborið við 28.095 í nóvember í fyrra, sem er 4,6% aukning á milli ára. Einnig varð aukning á farþegum sem flugu með PLAY til Íslands. 38.659 farþegar heimsóttu Ísland með PLAY í nóvember, samanborið við 35.059 farþega í nóvember í fyrra, sem er 10,2% aukning milli ára.
Stundvísi PLAY í nóvember var 90,7%, samanborið við 88,9% í nóvember í fyrra.
Söluaukning á svörtum föstudegi og einingatekjur hækka
PLAY lagðist í veglega herferð til að ná til neytenda í Norður-Ameríku, Evrópu og á Íslandi á markaðsdögunum í kringum svartan föstudag. Árangurinn af þeirri herferð var 10% aukning í sölu á milli ára og er bókunarstaðan fyrir 2024 og inn í næsta ár góð.
Nóvember var þriðji mánuðurinn sem framfarir hafa orðið á milli ára í einingatekjum eftir krefjandi sumar og hefur PLAY áður greint frá því að horfurnar fyrir einingatekjur inn í desember og árið 2025 séu jákvæðar.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY:
„Við sjáum enn jákvæð merki þeirrar ákvörðunar að leggja meiri áherslu á sólarlandaáfangastaði í Suður-Evrópu og á móti draga úr áherslu á áfangastaði í Norður-Ameríku. Það er ánægjulegt að sjá 7% aukningu á milli ára í farþegum sem ferðast til og frá Íslandi þrátt fyrir að hafa dregið úr framboði um 17%. Þetta endurspeglar vaxandi traust bæði innlendra og erlendra ferðamanna til PLAY, og má ætla að þeir átti sig á þeim góða valkosti að fljúga í ungum Airbus-flota með flugfélagi sem státar af öfundsverðri stundvísi, góðri þjónustu og selur flugið á hagkvæmu verði.
Þessar breytingar sem hafa verið gerðar á rekstri félagsins undanfarið hafa krafist mikils af samstarfsfólki mínu hjá PLAY, en það hefur mætt hverri áskorun af mikilli fagmennsku og með eljuna að vopni. Þau eru staðráðin í að gera PLAY að fyrsta vali ferðalanga og ég er sannfærður um að við séum á leið í rétta átt.
Nú erum við stödd í aðdraganda jólavertíðarinnar þar sem við ætlum okkur að veita farþegum okkar, sem eru ýmist á leið heim í faðm ástvina eða að halda á vit ævintýra, frábæra þjónustu. Við hlökkum mjög til þessa stóra verkefnis og ég sjálfur er afar spenntur fyrir nýju ári þar sem PLAY mun sannarlega sýna úr hverju það er gert.