- Fréttir
Play flýgur til Pula í Króatíu og fjölgar ferðum til Split
Play flýgur til Pula í Króatíu og fjölgar ferðum til Split
Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til borgarinnar Pula í Króatíu. Fyrstu flugið verður laugardaginn 31. maí 2025 og verður flogið einu sinni í viku fram til 16. ágúst.
Þetta er annar áfangastaður Play í Króatíu en Play hefur flogið einu sinni í viku til Split í ár við góðar undirtektir og mun áætlunin standa út október í ár. Á næsta ári verður ferðum til Split fjölgað í tvisvar sinnum í viku þegar mest lætur yfir áætlunina sem stendur frá 14. apríl og fram til loka október.
Borgin Pula er við Adríahafsströndina en hún einkennist af fallegum ströndum, líflegri menningu og mögnuðum fornminjum. Pula hentar því jafnt þeim sem sækjast eftir slökun og endurheimt og þeim sem vilja ævintýralegar gönguferðir og líflegt næturlíf.
Split býður einnig upp á möguleikann á ljúfri strandarferð við Adríahafið og í rétt undan ströndum beggja borga er að finna skemmtilegar eyjar með fjölbreyttu lífríki.
Þá mun PLAY einnig bjóða upp á þrjár ferðir til Zagreb í Króatíu í janúar. Ferðirnar þrjár eru allar á dagskrá í tengslum við leiki íslenska karlalandsliðsins í handbolta í riðlakeppni Heimsmeistaramótsins.
„Við bætum enn einum glæsilegum sólarlandaáfangastaðnum við leiðakerfið okkar. Íslendingar tóku vel í Split og því er rökrétt ákvörðun að bjóða upp á aðra perlu í Króatíu. Þetta eru gríðarlega fallegir áfangastaðir sem við trúum að muni heilla Íslendinga. Við höfum státað okkur af því að vera með eina glæsilegustu sólarlandaáætlun sem fyrirfinnst og Pula mun án efa laða marga að.“ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY.