- Fréttir
PLAY setur glæsilega áætlun í sölu
PLAY setur glæsilega áætlun í sölu
PLAY hefur sett glæsilega áætlun í sölu fram til ársins 2026 til vinsælla áfangastaða í Bandaríkjunum og Evrópu. Í Bandaríkjunum mun PLAY halda úti áætlunarflugi til Boston, Baltimore og New York, og munu þessar borgir tengjast við lykilborgir í Evrópu.
Á meðal vinsælla sólarlandaáfangastaða í Evrópu eru Tenerife, Las Palmas, Alicante, Lissabon, Malaga, Madeira og nýjasti áfangastaðurinn í leiðakerfi PLAY, Antalya í Tyrklandi. Þeir sem hafa hug á borgarferðum geta fundið flug til Kaupmannahafnar, Barcelona, Madríd, Lundúna, Liverpool, Amsterdam, Parísar og Dublin.
Farþegar sem ferðast á milli Evrópu og Bandaríkjanna munu að sjálfsögðu geta dvalið í tíu daga á Íslandi með því að nýta sér „stopover“ möguleikann í bókunarvél PLAY, áður en þeir halda ferð sinni áfram yfir Atlantshafið.