- Getum við aðstoðað?
Hjólastólaaðstoð á flugvellinum
Hjólastólaaðstoð á flugvellinum
Við þurfum að fá að vita hvernig aðstoð þú þarft í síðasta lagi 48 tímum fyrir flugið þitt. Ef að beiðni berst eftir þann tíma geta orðið tafir á þjónustunni en við munum að sjálfsögðu gera okkar allra besta til að uppfylla það sem beðið er um.
Þú getur bætt sérþjónustu við bókunina þína í bókunarferlinu okkar eða í gegnum MyPLAY aðganginn þinn eftir bókun. Vinsamlegast skoðaðu valkostina hér að neðan og athugaðu hvað hentar þínum þörfum.
Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að senda okkur tölvupóst á [email protected].
WCHR (Hjólastóll að landgangi)
Farþegi þarf hjólastól til að komast um á flugstöðvarsvæði og að flugvél, en getur farið upp og niður tröppur og komið sér sjálfur um farþegarými og í sæti.
WCHS (Hjólastóll að landgangi og aðstoð við þrep)
Farþegi þarf hjólastól til að komast um á flugstöðvarsvæði og að flugvél og þarfnast aðstoðar við að komast upp og niður tröppur. Hins vegar getur farþegi komist sjálfur um farþegarými og í sæti.
WCHC (Hjólastóll að sæti)
Farþegi þarf hjólastól til að komast um á flugstöðvarsvæði og að flugvél og þarf aðstoð við að komast upp og niður tröppur. Farþegi þarf einnig aðstoð við að komast um farþegarými eða í sæti.