Skoða efni

MyPLAY - Hvað er nú það?

MyPLAY er aðgangur þinn að öllum þínum viðskiptum við PLAY. Eftir að þú stofnar aðgang að MyPLAY í fyrsta skipti áttu alltaf greiða leið að þínum upplýsingum og viðskiptum og getur hagrætt bókun þinni og þjónustu þegar þér sýnist.

Við leggjum okkur fram við að hafa þetta eins einfalt og hægt er.

Hér fylgja leiðbeiningar um nokkrar algengar aðgerðir inni í MyPLAY eftir að upprunalegri bókun er lokið.

PLAY aircraft

Að búa til MyPLAY aðgang

Það er ekki nauðsynlegt að stofna MyPLAY aðgang til þess að bóka flug en við mælum þó með því. MyPLAY aðgangurinn veitir þér allar þær upplýsingar sem þú þarft fyrir flugið þitt.

Til að geta sett upp aðganginn verður þú að skrá fullt nafn, netfang og velja lykilorð. Passaðu að gera ekki bil á eftir netfanginu þínu því þá gæti komið villumelding.

Þú byrjar á því að ýta á Stofna aðgang. Þá getur þú skráð allar viðeigandi upplýsingar.

Að því loknu hefur þú stofnað þinn MyPLAY aðgang.

Hvað svo?

Mínar bókanir er yfirlitssíðan þín og veitir þér allar þær upplýsingar sem að þú þarft fyrir flugið þitt.

Inni á þínum aðgangi getur þú meðal annars bætt við þjónustu, valið sæti, endursent bókunarstaðfestinguna þína og skoðað komandi flug.

Þar getur þú einnig innritað þig í flugið þitt 24 tímum fyrir brottför. Þetta gæti ekki verið einfaldara.

Mínar bókanir

Að bæta við bókun

Undir Mínar bókanir getur þú bætt bókun við MyPLAY aðganginn þinn. Til þess að bæta bókuninni við þarf að slá inn bókunarnúmer (6 stafa númer sem byrjar á M) og eftirnafn farþega. Eftir að þú hefur bætt þeim upplýsingum við, smellir þú á Bæta við bókun og þá ætti bókunin að birtast undir Næstu flug.

Að setja inn persónuupplýsingar

Áður en lengra er haldið skiptir máli að allar persónuupplýsingar séu hárréttar. Við þurfum að geta náð í þig ef eitthvað breytist og því skaltu fara vel yfir þennan hluta og passa að uppfæra upplýsingarnar ef eitthvað breytist. Smellið á MyPLAY reitinn efst á vefsíðunni. Smellið svo á lundann og þaðan á Mín síða.

Það flýtir fyrir næstu bókun að vista upplýsingar á MyPLAY aðgangi þínum. Þetta sparar mikinn tíma ef þú skellir þér á gott tilboð í borgarferð með vinunum eða þegar þú bókar skíðaferð fyrir alla stórfjölskylduna.
Á mínum síðum getur þú meðal annars vistað farþegaupplýsingar, bætt við ferðafélaga, breytt lykilorði eða eytt notandaaðgangi.

Að bæta við þjónustu

Þarftu auka tösku? Aukið fótapláss? Til að bæta þjónustu við bókun er smellt á skoða bókun.

Því næst velur þú hvers konar aukaþjónustu þú vilt bæta við undir farþegar.

Auka þjónusta

*Athugaðu að þegar þú bætir aukaþjónustu við flugið þitt hangir þjónustan inni á MyPLAY aðganginum þínum í 30 mínútur þar til gengið er frá greiðslu. Ef þú vilt hætta við það sem þú valdir getur þú annaðhvort beðið í 30 mínútur eða haft samband við þjónustuteymið okkar sem fjarlægir þjónustuna af fluginu. 

Að endursenda bókunarstaðfestingu

Þegar þú bókar flug færðu senda bókunarstaðfestingu á netfangið þitt. Ef þú vilt að hún sé send aftur er smellt á flugið og undir bókunarnúmerinu þínu getur þú smellt á endursenda staðfestingartölvupóst.

Endursenda bókunarstaðfestingu

Að innrita sig

Innritun er skemmtilegust enda sáraeinföld og það eru engar biðraðir á MyPLAY aðganginum þínum.

Til að innrita þig á netinu, þá skráir þú þig inn á MyPLAY aðganginn þinn á heimasíðunni okkar, velur flugið þitt og ýtir á Innritun. Vefinnritun opnar 24 klukkustundum fyrir áætlaðan brottfarartíma og lokar einni klukkustund fyrir áætlaðan brottfarartíma. Þú ferð í gegnum nokkur skref í innritunarferlinu:

  • Staðfestir nöfn
  • Bókunarnúmer
  • Brottfararstað
  • Staðfestir ferðaskilríki, ásamt yfirlestri og samþykki á skilmálum okkar

Að lokum, getur þú bætt við farangri eða sæti. Ef engin sæti eru valin verður þér úthlutað sæti að kostnaðarlausu. Þegar þú hefur lokið innritun færðu sent brottfararspjald á netfangið þitt. Einfalt, ekki satt?

*Athugið að netinnritun er ekki í boði frá Billund (BLL), Cardiff (CWL), Genf (GVA), Split (SPU) og Verona (VRN). Farþegar þurfa því að innrita sig við þjónustuborð á flugvellinum þar.

Hvernig breyti ég bókun á MyPLAY?

Skref 1: Skráðu þig inn á MyPLAY aðganginn þinn til að gera breytingarnar. Þú ferð í mínar bókanir og smellir á skoða bókun. Smelltu svo á breyta flugi og þar getur þú gert breytingarnar.

Breyta bókun

Skref 2: Næst skaltu velja þá farþega og flug sem þarf að breyta og smellir svo á Áfram.

Velja flug og farþega

Skref 3: Veldu þá dagsetningu sem þú vilt breyta í og smelltu svo á Staðfesta val. Næst færðu upp samantekt og ef allt er eins og það á að vera þá smellir þú á já, breyttu fluginu mínu.

Skref 4: Næst er greiðsluferlið. Byrjaðu á að haka í reitinn til að samþykkja skilmála áður en þú heldur áfram á greiðslusíðuna. Á næstu síðu getur þú slegið inn greiðsluupplýsingar.

Athugaðu að breytingarnar ganga ekki í gegn fyrr en greiðslan hefur verið framkvæmd.

greiðsluferlið
greiðsluferlið

Þegar þú hefur gengið frá greiðslunni, munt þú fá uppfærða bókunarstaðfestingu í tölvupósti.

Að eyða aðgangi

Neðst á síðunni er svo hægt að eyða MyPLAY aðganginum í heild sinni sem er sjálfsagður réttur viðskiptavina okkar og mikilvægur hluti af okkar persónuverndarstefnu. Það er gert með því að slá inn lykilorðið í reitinn og velja Eyða reikningnum mínum. Þeir sem vilja nálgast öll gögn sem PLAY geymir um viðkomandi geta sent beiðni á [email protected].