Skoða efni

Má ég ferðast með veiðibúnað líkt og veiðistangir og byssur?

Já, svo lengi sem þú fylgir pökkunarleiðbeiningum okkar

Pökkunarleiðbeiningar

Veiðistöngum og veiðibúnaði á að pakka í harðspjalda, öruggar umbúðir og veiðistangir skal brjóta saman. Ekki er tekið við lifandi beitu í flug. Samkvæmt fyrirbyggjandi aðgerðum gegn útbreiðslu smitsjúkdóma hér á landi er bannað samkvæmt lögum að nota veiðibúnað (þar með talið vöðlur og stígvél) sem hefur verið notaður erlendis nema búnaðurinn hafi verið sótthreinsaður á fullnægjandi hátt. Vinsamlega hafið í huga reglur og reglugerðir á áfangastað. Veiðibúnaður er bókaður sem stór sérfarangur og engu öðru má pakka með í töskuna.

Skotvopn og skotfæri má ferðast með til einkanota. Vinsamlegast athugið að ferðast þarf með byssuleyfi farþega og öll önnur opinber skjöl sem gæti þurft að sýna á áfangastað.

Ef að leyfið eða skjölin eru ófullnægjandi við komu á áfangastað ber farþegi sjálfur ábyrgð á öllum þeim sektum og útgjöldum sem hann kann að verða fyrir. 

Hvernig á að pakka búnaðnum:

  • Vopn og skotfæri má aðeins flytja í farangursrými vélarinnar og þarf að bóka í gegnum Þjónustuteymið.
  • Byssuna á að taka í sundur.
  • Skotfærum á að pakka sér.

Hér fyrir neðan má finna nákvæmari upplýsingar um það hvernig á að pakka vopnum og skotfærum.

Vopn og skotfæri

Vopn (rifflar, haglabyssur, loftrifflar og skammbyssur) til veiða og íþróttaiðkunar eru samþykkt í flug, en einungis í farangursrými vélarinnar.

  1. Vopnum og skotfærum á að pakka sérstaklega frá öðrum innrituðum farangri og geyma á stað þar sem óviðkomandi aðilar geta ekki nálgast þau.
  2. Farþegi sem innritar vopn eða skotfæri þarf að sýna fram á viðeigandi gögn, þar með talin leyfi sem segja til um notkun skotvopnsins á áfangastað, en einnig útflutningsleyfi frá viðkomandi ríki. Starfsfólk í innritun gengur í skugga um að skotvopnið sé ekki hlaðið, en skírteinishafi þarf einnig að staðfesta að skotvopnið sé óhlaðið.
  3. Vopnum skal pakkað í öruggar, harðspjalda pakkningar og merkja „skotvopn“ sem og nafni eiganda.
  4. Skotfærum eða skothylkjum að frátöldum þeim sem innihalda sprengiefni eða sprengiskotfæri (skv. 1.4S: UN0012 og UN0014I) ber að pakka tryggilega, helst í sterkar, lokaðar pakkningar úr tré, málmi eða trefjaplötu. Skotfærunum á að pakka tryggilega til að koma í veg fyrir hreyfingu eða að það komi högg á þau í meðhöndlun og/eða meðan á ferðalagi stendur.
  5. Magn skotfæra má ekki fara yfir leyfilegt magn. Leyfilegt magn er að hámarki 5 kg og skotfærin verða að vera ætluð til einkanota farþegans.
  6. Farangur sem inniheldur vopn og skotfæri á að innrita við afgreiðslu fyrir sérfarangur/yfirvigt þar sem hann er gegnumlýstur og samþykktur fyrir flug. Farangurinn er skoðaður sérstaklega af starfsmönnum flugvallarins ef þörf er talin á.

Vinsamlegast fylltu út 2 eintök af þessu formi Hlekkur opnast í nýjum flipaog komdu með á flugvöllinn.

Láttu okkur vita

Þú getur bætt þessu við bókunina þína með því að hafa samband við þjónustuteymið okkar.

Athugaðu að þessu þarf að bæta við bókunina þína í síðasta lagi 48 tímum fyrir flugið þitt.