Skoða efni
8. Jun 2021

PLAY kynnir einkennisfatnað flugfélagsins

Það er óhætt að segja að einkennisfatnaður PLAY boði breytta tíma í ásýnd áhafna. Hönnuðirnir eru Gunni Hilmars og Kolbrún Petrea Gunnars sem skiluðu af sér frábærri línu í anda fyrirtækisins. „Það var alveg magnað að sjá hvað Gunni og Kolla skildu vel þær hugmyndir sem við höfðum fyrir einkennisfatnaðinn. Við lögðum ákveðnar línur um það hvað við vildum fá út úr fatnaðinum og hvernig hann ætti að virka með okkar vörumerki og útkoman er algjörlega frábær,“ segir Jónína Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs PLAY.

Meðfylgjandi er sýnishorn af dýrðinni en áhafnarmeðlimir sýndu áður óþekkta takta með karatespörkum og jógapósum í myndatökunni enda ekkert sem hélt aftur af þeim. „Fatnaðurinn á að endurspegla gildin okkar, einfaldleikann, leikgleðina, keppnisandann, jafnrétti og stundvísi. Fólki verður frjálst að velja það sem hentar hverjum og einum og sá tími er liðinn að gerð verði krafa um háa hæla, bindi, hárgreiðslu og farða. „Svo er fatnaðurinn  bara æðislega flottur, þótt við segjum sjálf frá,“ segir Jónína.

“Það var okkur heiður og mikil ánægja að fá að vinna með PLAY og hanna fatnaðinn. Ferlið er búið að vera afar ánægjulegt enda einstakt að fá að fanga kraftinn í svona frábæru verkefni eins og PLAY er,” sögðu hönnuðirnir Gunni og Kolla um verkefnið.

„Við vildum nálgast þetta þannig að nota þá tækifærið og reyna að henda út flestum þeim gömlum stöðluðu hugmyndum sem að flugfatnaður hefur stuðst við hingað til. Auka þægindin, fækka reglum sem starfsfólk í þessum fagi þarf oft að fara eftir og gera heildarútlit og notkunarmöguleika PLAY-línunnar eins mikla og hægt er. Við leggjum það þannig upp að einstaklingurinn má í raun velja að klæðast stílum úr allri línunni og blanda þeim saman að vild.

Við vildum vinna með þægileg snið, efni sem eru með góðri teygju, sniðin þannig að pláss er fyrir hreyfingu og hugsa þetta meiri í áttina að íþróttafatnaði frekar en hefðbundnum einkennisfatnaði.

Við leggjum mikið upp úr notkun á vörumerkinu sjálfu og vildum hafa þetta ferskt og spennandi. Við nostruðum við hvert smáatriði eins og fóður, tölur, prent og fylgihluti og til að ramma inn þægindin þá eru íþróttaskór hluti af línunni.  

Við lögðum mikla áherslu á að allir framleiðendur og samstarfsaðilar í ferlinu hvort sem það eru efnaframleiðendur eða verksmiðjur væru vottaðar út frá þeim stöðlum sem við setjum okkur frá umhverfis og félagslegum forsendum,“ sögðu Gunni og Kolla.

Þetta er sannkölluð bylting!

PLAY crew uniforms
PLAY crew uniforms